Saturday, March 22, 2008

Upphafspóstur

Þá hef ég opnað þessa síðu í þeim tilgangi að setja hér inn sögur, myndir og þess lags, bara öllu sem tengist ferðalagi mínu.

Ég ætla aðeins að útskýra þessa ferð mína, ég legg í hann núna á þriðjudagsmorgun, flýg til Schiphol í Amsterdam og flýg þaðan aftur 24. apríl næstkomandi, sumardaginn fyrsta hér á fróni. Ég hef því heilan mánuð til að flækjast um Evrópu þvera og endilanga. En það ætla ég þó ekki að gera, ég hef ákveðið að halda mig við vestur og mið Evrópu, þ.e. þýskumælandi löndin þrjú, Holland og vonandi einhverjir smátúrar inn fyrir landamæri Frakklands og Ítalíu. Austur-Evrópu og Suður-Evrópu eru efni í annan túr sem ég fer ef til vill seinna.

Ég ætla að reyna að gista á farfuglaheimilum, en hvur veit nema ég veit mér þann lúxus að gista eina og eina nótt í gistiheimili, B&B eða ódýru hóteli.

Ég er með Interrail eins mánaðar passa sem gildir um vestur Evrópu, kostaði mig litlar 46þúsund krónur. Ég held samt að það borgi sig fljótt upp. Ég flýg út og heim með Icelandair og fékk miðanna á 35þúsund samtals, ágætur díll svosem. 

Endilega, ef þið hafið farið til þessarra landa bendið mér á skemmtilega staði til að heimsækja, eða þvíumlíkt.

No comments: